NAPOLISólveig Heimisdóttir

Jaeja agaetu lesendur!

Nuna erum vid ad eg held a 5 degi her i Napoli og her hofum vid verid algerar dekurrofur hja johonnu og clem, fengid hverja frabaera maltidinna a faetur annari og setid i godu og skemmtilegu spjalli a kvoldin og eru tau buin ad syna okkur allskonar stadi og rolta med okkur og syna okkur borgina sina.

I fyrradag tokum vid johanna yr :) lest til Pompei og skodudum tar alla kroka og kima en myndirnar koma vist ekki inna netid fyrr en eftir ad vid komum heim tvi eg kemst ekki a netid i tolvunni minni her. Tetta var mjog undarlegur stadur og skrytid ad hugsa um tad hvad gerdist tarna en mjog gaman ad skoda.

Um kvoldid forum vid svo med 3 herramonnum i bilferd um Napoli, theim Enrico, Luka og Francesco, keyrdum upp a utsynishaed og teir budu okkur upp a bjor og eftir tad forum vid heim til Luka til ad hleypa hundinum hans ut og svo bara heim aftur. En i gaerkvoldi komu Freddy, Nadja,(tau bjuggu med okkur i Rom) Nicole og Priska(taer voru med okkur i skolanum) til okkar, tvi tau sakna okkar svo mikid, og verda her tangad til vid forum heim.

Tau skelltu ser oll i fegurdina a Capri i morgun og koma aftur i kvold, stelpurnar eru ad versla og eg aetla ad hitta taer a eftir.

Nu erum vid bara ad leggja af stad heim a morgun og veit eg vart hvort eg a ad hlaegja eda grata, helst myndi eg bara vilja fara aftur til rom en tad er pottthett enginn mommumatur tar sem eg er vaegast sagt farin ad sakna HELLING og ja vid soknum ykkar lika svona soldid hehe :)

Sjàumst bara heima :D
Maja

Komid allir Capri-sveinarSólveig Heimisdóttir

Sael bloggthyrsta folk !
Vid erum komnar fra Capri en tar var alveg yndislegt to ad solin hafi ekki verid ad teygja sig i okkur nema rett i lokin ta gatum vid farid a strondina. Vid skodudum Blaa helllin sem var ran, hann sigldi med okkur i arabat og syndi okkur hellinn i 7 minutur og vid borgudum 10 evrur fyrir hver, tegar ut ur hellinum var komid leit hann svo a hverja okkar og bad okkur um tips! Hann song o sole mio og volare fyrir okkur sem vid erum bunar ad fa ad heyra ofaum sinnum i tessari ferd.
Nu erum vid komnar til Napoli, eg verd ad vidurkenna ad eg bjost vid meira rusli midad vid frettir i sjonvarpi, en teir eru greinilega eitthvad ad ruppa til i kringum sig.
Okkur var bodid i mat til Pianura gengisins i gaer i ljuffenga 10 retta maltid ! Sungum jolalog med Christian og Clem tok okkur svo i utsynistur um borgina og syndi okkur hvad unga folkid er ad gera a naeturnar! I morgun vorum vid svo vaktar med kaffi og med tvi her a hotelinu sem er rosa vel stadsett a milli midbaejarins og sjosins.
Bloggum kannski aftur adur en vid komum heim en tad er nu oskop stutt tangad til ! Nu aetlum vid ut ad leita ad tourist information og skoda okkur um.

Bless i bili
Johanna og Solveig :o)

Skólinn búinnSólveig Heimisdóttir

Hæhó seinasti skóladagurinn var í dag, ég dreif mig út í lest korter yfir átta sem er mjög snemma miðað við vanalega því það var von á verkfalli hjá strætó og metro, ekki mjög skemmtilegt. Ég fór ein, hörkutólið með brunnu hnén, og skildi brunarústirnar eftir heima. Svo þegar skólinn var búinn var metro ennþá í verkfalli svo ég smá ráðvillt hvað ég ætti að gera því ég kann ekki að taka strætó frá skólanum og heim, ég er ekki einu sinni viss um að það sé hægt nema þá með því að taka 2 kannski, þannig að ég tók leigubíl, og mér til mikillar lukku þá í fyrsta skipti í ferðinni var svindlað á mér því hann bókstaflega þræddi alla róm eins og hún leggur sig áður en hann ákvað að skila mér þangað sem ég vildi fara, helvítis asninn ég var ekki sérlega glöð !
Við fórum nefnilega á ströndina á fimmtudaginn og lágum þar eins og skötur þangað til við urðum fjólubláar:) En það var samt mjög gaman þó við verðum aðeins að vera í skugganum í dag og á morgun. Ég er búin að pakka núna, á bara eftir að kaupa lestarmiðann til Napólí og þá erum við bara tilbúnar. Á miðvikudaginn fengum við okkur alvöru mat (ekki pasta og ekki pizzu) í fyrsta skipti í ferðinni, rrooosalega gott nautafille með rauðvínssósu, það var algjört æði til tilbreytingar:) Erum að fara út að borða aftur í kvöld og kveðja bekkjarfélagana og svona. Gott í bili Ciao Sólveig:o)

p.s. það er hlébarði týndur úr dýragarðinum, gott ráð er víst að eiga fína steik í veskinu.

FréttaskotSólveig Heimisdóttir

Halló halló -

Við erum ekki búnar að vera duglegar að túristast mikið síðustu viku en sérstaklega duglegar að skemmta okkur og öðrum.
 Eins og sólveig sagði í síðustu færslu þá höfum verið duglegar að stunda pub crawl, sem myndi eflaust þýðast sem pöbbarölt á íslensku, en það gengur þannig fyrir sig að hópur fólks smalast saman við spænsku tröppurnar fer svo þaðan á nálægan bar og greiðir við innganginn 20 evrur og við tekur klukkustund þar sem ekki þarf að borga fyrir drykki og þá þarf maður eiginlega að reyna að drekka upp í 20 evrurnar, eftir það er rölt á næsta stað þar sem við fáum einhver sértilboð á barnum - áfengi er stórkostlega dýrt á börum hérna miðað við hvað það kostar t.d. í súpermarkaðnum - og svo er bara dansað og rabbað við fólk úr öllum áttum. Næstum allir sem við hittum verða stórkostlega hissa á því að við séum frá íslandi og segja okkur allt það sem þau vita um ísland... yfirleitt er það eitthvað um bláa lónið eða geysi og náttúrulega hvað það er ofboðslega kalt hjá okkur :)

Núna er sólveig að elda spaghetti carbonara handa okkur, hún er mjög dugleg að elda, það eina sem ég hef eldað hérna er eggjabrauð og það telst nú varla til eldamennsku.

Ég ætlaði að setja inn fleiri myndir fyrir ykkur í dag en ég er búin að gleyma aðgangsorðinu mínu og því verða því ekki fleiri myndir í bráð frá mér.

Það er kominn matur þannig ég segji bara bless.
María

Vika eftir í RómSólveig Heimisdóttir

Hæ hó !
Afsakið bloggleysi en við erum bara ekkert að gera þannig séð af viti nema labba um götur Rómaborgar, vera í  skólanum og nú erum við reyndar búnar að finna okkur nýtt áhugamál, pub crawlið, sem er einkar skemmtilegt og við erum orðnar fastagestir þar:) Búnar að kynnast allskonar fólki allstaðar frá úr heiminum og í gær tókum við tvo bekkjarfélaga með okkur og þau bara hafa ekki skemmt sér svona vel í ferðinni, við erum náttúrulega svo hressar og skemmtilegar líka! Núna ætlum við bara að fara að njóta góða veðursins, ætla að giska á að það sé 25 stiga hiti, hlamma okkur á eitthvað gras sem við ætlum að finna í einhverjum garði vonandi og lesa. Stelpurnar eru með 100 bækur með sér og eru búnar að lesa þær allar, ég er ennþá á fyrstu bók því ég sofna alltaf þegar ég byrja að lesa en þetta er að koma ! Jæja set inn nokkrar myndir í kvöld en nú ætlum við að drífa okkur út :) Ciao ciao Sólveig

gamangamanSólveig Heimisdóttir

jaeja, eg sit inni tolvustofunni i skolanum ad bida eftir maju og solveig... eg er kominn med einhvern fjanda i andlitid og er a leid upp a spitala tvi tar er svona foreigners deild, bokad mal ad eg geti talad ensku og tarf ekki ad reyna a itolskuna mina sem inniheldur engan ordaforda um spitala og veikindi ! eg og solveig skelltum okkur a spaenskutroppurnar a manudaginn og forum a pupcrawl (alveg ovart) med fullt af lidi, var alveg rosalega gaman! kynnumst fullt af nyju folki og aetlum ad draga maju med okkur vid taekifaeri :) annars er voda gaman hja okkur, sol og blida og hitinn ad haekka! ciao Johanna

Löng góđ helgiSólveig Heimisdóttir

Þetta er búin að vera frábær helgi og samt er bara Laugardagur. Fórum eins og Maja sagði út að borða á fimmtudaginn á mjög huggulegan veitingastað á Trestevere, fundum hann fyrir algjöra slysni hann var ekki áberandi, besta pizzan hingað til ! Svo, fyrir algjöra slysni líka, var barinn hliðiná alveg rosalega skemmtilegur líka og öðruvísi þar sem við sátum á pullum á gólfini með rosalega góða kokteila og ávaxtapípur með kirsuberjabragði, eplabragði og melónubragði. Á föstudaginn kom svo Maja loksins út með okkur eftir þessa lönug veikindaviku hjá greyinu og við skelltum okkur í Vatíkanið í góða veðrinu og skoðuðum safnið þar og fórumí smá sólbað og svona, fórum reyndar ekki inn í kirkjuna því röðin var svo hryllilega löng en við skreppum bara þangað seinna. Um kvöldið fórum við svo aftur með krökkunum út að borða, fékk mér loksins eitthvað annað en pizzu og pasta, þjónarnir gáfu okkur svo köku því við erum svo hress og skemmtileg. Svo fórum við á skemmtistað, sem tók okkur heljarinnar tíma að finna því hann er frekar afskekktur, þá voru fæturnar á mér orðnir 3faldir af göngunni miklu í hælaskónum og staðurinn var ekki alveg við mitt hæfi svo við fórum bara ekkert svo seint heim. Í dag tókum við Jóhanna svo smá shopping session afþví að við sáum í gær að það voru svo fallegar búðir rétt hjá Vatíkaninu og ég keypti mér strumpanáttbuxur og eitthvað smotterí !:) Núna erum við svo bara að fara að elda okkur gnocchi og hafa það huggulegt, ekkert planað allavega fyrir kvöldið svo það verður bara að ráðast ! 

Var svo að setja inn fleiri myndir:

www.flickr.com/photos/solaveiga


Ciaoooo Sólveig:o) 

Sumardagurinn fyrstiSólveig Heimisdóttir

Ætli það sé ekki kominn tími á eitt blogg eða svo ..

Sólveig og Jóhanna eru úti með bekknum en það fóru allir út að borða saman, á meðan er ég hérna heima að losa mig við flensuna mína að hlusta á sambýlinginn okkar frá Ungverjalandi (oft kölluð subban) sem er með lítið boð inni í herberginu sínu og þeim finnst þær greinilega syngja mjöööög vel því þær taka hvern slagarann á fætur öðrum og ég ætla að leyfa mér að vera ósammála þeim en hef samt mjög gaman að þessu. Var að hugsa um að ná í upptökuvélina en var svo ekki alveg viss hvernig ég myndi útskýra sjálfa mig standandi fyrir utan hurðina hjá þeim, með græjuna í höndunum, flissandi ef þær myndu opna á mig.

Annars er ég búin að vera að dunda mér við að setja upp myndasíðu, því jú ég tek víst myndir hérna líka og þá meira fyrir ykkur að skoða ----> www.flickr.com/photos/maria_bjork njótið.

Stelpurnar eru búnar að vera rosalega góðar við mig síðustu kvöld og erum við búnar að kúra og horfa á video með popp og kók í hönd og hafa það notalegt.

Þær lentu í svaka rigningardembu um daginn, það voru þrumur og eldingar og hagglél í boði og þær komu heim gegnvotar og tók það kápuna hennar sólveigar a.m.k 2 daga að þorna.

Það er spáð blíðviðri hérna um helgina og það er frí í skólanum á morgun þannig við förum örugglega að túristast eitthvað ef það er opið einhversstaðar, spilum það bara eftir eyranu.

Annars óska ég ykkur bara gleðilegs sumars :)

Ciao !
María

Sunnudagskvöld og heimalćrdómurSólveig Heimisdóttir

Vika liðin og einn dagur til ! 18 stiga hiti í dag og í gær, við komnar með oggu pocco far. Á morgun á að vera 18 stiga hiti og rigning, henni ætlar ekki að linna. Fórum í dag með nesti á torg eitt skammt frá, Piazza del Popolo, og sátum í sólinni, fórum svo á útsýnisstall og sáum yfir alla Róm sem er alveg dásamleg. Þá ákváðum við að skella okkur bara í sight seeing bus þar sem veðrið væri svona frábært og rúntuðum um Róm og tókum myndir af öllu fallegu byggingunum. 

www.flickr.com/photos/solaveiga

Var einmitt að bæta við í albúmið, endilega kíkiði hvað er dásamlegt hjá okkur.
Næsta föstudag er svo frí í skólanum svo það verður stutt skólavika og löng helgi, sem er svolítið gott finnst okkur þó það sé nú rosalega skemmtilegt í skólanum, við farnar að rabba örlítið við ítalina í búðunum og á veitingastöðunum, ekkert smá flinkar.

Bið að heilsa í bili, 
Ciao Sólveig

Laugardagskvöld.Sólveig Heimisdóttir

Jæja, þá erum við búnar að vera í Róm í heila viku, sem hefur liðið alveg afskaplega hratt, eiginlega of hratt.

Að vísu erum við ekki búnar að gera sérstaklega margt því við erum alltaf í skólanum til 5 á daginn og skal ég viðurkenna það að maður er oft svolítið lúinn eftir 6 klst á ítölsku þar sem við þurfum að hafa okkur allar við til að skilja hvað er verið að segja. Kennslan er reyndar alveg mjög skemmtileg, kennararnir leika nánast allt sem þeir segja svo að við skiljum þá.

Í bekknum okkar eru krakkar alls staðar að t.d. ástralíu, S-Kóreu, hollandi, noregi,belgíu,þýskalandi, ísland, englandi, ameríku og venezuela.

Gærdeginum eyddum við í smá skoðunarferð til að átta okkur betur á hlutunum en við erum mjög heppnar með staðsetningu, það er mjög stutt að fara í skólann og út í búð og niðrí miðbæinn. En í gær fengum við semsagt nasasjón af Colosseo og rústunum í kringum það sem ég held að séu kallaðar Palatino en við eigum eftir að kynna okkur það betur. Í gærkvöldi fórum við svo með hóp úr bekknum út að borða og á kaffihús sem var mjög skemmtilegt og gaman að kynnast fólkinu aðeins betur.

Annars er allt gott að frétta af okkur, sólveig og jóhanna elduðu pasta í kvöld í "huggulega" eldhúsinu okkar sem heppnaðist mjög vel og gott að vita að við getum eldað góðan kvöldmat fyrir €2 á mann í staðinn að eyða um € 1o-15 út á veitingastöðunum.

Ég held að planið sé að fara og skoða Vatikanið á morgun og er videovélin komin í hleðslu.

Við látum heyra í okkur aftur bráðlega og smellum fleirum myndum inn við tækifæri.

Kv. María

Ađalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Könnun

Hversu mikiđ sakniđi okkar?

Heimkoma

Gagnasafn

Innskráningar kubbur